Um Sterkari60+

Við hjálpum þér að lifa heilbrigðara og virkara lífi

Af hverju Sterkari60+?

Með áralangri reynslu í þjálfun fólks 60 ára og eldri höfum við séð með eigin augum hvernig regluleg hreyfing getur umbreytt lífsgæðum. Hún styrkir ekki aðeins líkamann, heldur einnig sjálfstraust, hugarfar og vellíðan í daglegu lífi.

Þetta námskeið er okkar leið til að miðla þessari þekkingu og reynslu til sem flestra – svo fleiri fái raunverulegt tækifæri til að halda heilsu, styrk og sjálfstæði á efri árum.

Lífsýn okkar er skýr: langlífi snýst ekki einungis um fjölda ára, heldur einnig gæði þeirra. Þetta námskeið er skref í átt að sterkara, öruggara og virkari lífi – þar sem þú styrkir líkamann, eykur sjálfstraust og öryggi í hreyfingum.

Gildin okkar

Þessi gildi leiða okkur í öllu sem við gerum.

Sjálfstæði

Við þjálfum til að viðhalda og efla sjálfstæði í daglegu lífi.

Styrkur með tilgangi

Við byggjum upp styrk sem skiptir máli – svo þú getir lifað virku og sjálfstæðu lífi, lengur.

Vöxtur

Efri árin eru ekki afturför - heldur tækifæri til styrkingar.

Fagmennska

Reynslumiklir þjálfarar með þekkingu á þjálfun fólks 60 ára og eldri.

500+

Ánægðir viðskiptavinir

50+

Æfingamyndbönd

5+

Ár af reynslu